Fuglar

Dílaskarfur

Þegar maður skoðar dílaskarfa í návígi er ráðlegt að standa fyrir framan þá. Annars er hætt við skarfarnir gefi skít í mann. Þessar myndir voru teknar á Álftanesinu.

Dílaskarfur Read More »

Maríuerla

Maríuerla með góðgæti í gogginum. Maríuerlan lifir aðallega á fiðrildum, bjöllum og tvívængjum. Veiðir ýmist dýr á flugi eða tínir þau upp af jörðinni og á það til að tína dauð skordýr af grillum og stuðurum bíla. Vetrarstöðvar hennar eru í Vestur-Afríku.

Maríuerla Read More »

Kría

Það er ekki heiglum hent að stunda fuglaljósmyndun. Hér ræðst kría á ljósmyndara við Skálanes á Seyðisfirði.

Kría Read More »

Straumönd

Straumönd stingur sér í straumharða Vestdalsá, á móti hvítfyssandi iðunni. Straumöndin er einkennisfugl Seyðisfjarðar; harðgerð og hraðfleyg, með afbrigðum sundfim og öldungis óhrædd við að berjast á móti straumnum. Þegar hún mætir andstreymi sér hún tækifæri til að kafa eftir æti.

Straumönd Read More »

Hávella

Hávella í lendingu. Hávellan verpur aðallega á hálendinu, en einnig við sjávartjarnir og vötn á láglendi. Karlfuglinn gefur frá sér hávært jóðl en kvenfuglinn lægri hljóð. Myndin var tekin á Seltjarnarnesi, nálægt Gróttu, þar sem hávellur eru algengar á veturna.

Hávella Read More »